Færsluflokkur: Íþróttir

Tínóinn í húsmæðraorlof!!!

Kallinn er með klemmda taug þó taugalaus sé.

Á meðan leikur Bollan lausum hala og rembist í gyminu. fór á sunnudaginn var og tók bekk fyrst 100x5 og svo 102,5x5x2. Gott m.v. hann.

Svo fór hann aftur á þriðjudag og tók beygjur með Fannari fagra. Bollan tók 165 x5x2 og varð rauðari en sólin og svo í þriðja setti gafst hann upp eftir fjögur reps. Á meðan tók sá Fagri 210x5x3 nokkuð létt. Hann er jafnþungur og Bollan, sem segir kannski mest um hvurslags aumingi Bollan er að kall úr Hlíðunum á fimmtugsaldri taki 50kg meira í 3x5 í beygjum.

Bollan er aumingi segi ég og skrifa!!!

Heyrumst síðar Tínó


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband